Man Utd undirbýr tilboð í Kone - Adeyemi færist nær Barcelona

Manu Kone á æfingu á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kolo Muani lék á láni með Tottenham í fyrra.

Mynd: EPA

Christos Tzolis orðaður við Arsenal.

Mynd: EPA

Færist nær Tyrklandi.

Mynd: EPA

Manu Kone á æfingu á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arsenal styrkir við sig, Tottenham býður í Kolo Muani og Man Utd undirbýr tilboð í Kone. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Tottenham hefur lagt fram tilboð í framherjann Randal Kolo Muani (27), sem er á mála hjá PSG. Juventus er þó enn talið líklegast til að fá Frakkann. (Tuttosport)
Arsenal er tilbúið að ganga frá kaupum á kantmanninum Christos Tzolis (24) frá Club Brugge fyrir 35 milljónir punda. (The Sun)
Barcelona hefur hafið viðræður við Borussia Dortmund um Karim Adeyemi (24). Það gæti minnkað líkurnar á því að Marcus Rashford (28) snúi aftur til félagsins. (Sky Germany)
Manchester United undirbýr tilboð í miðjumanninn Manu Kone (25), leikmann Roma. Frakkinn vill spreyta sig í ensku úrvalsdeildinni og er hann falur fyrir rétt verð. (Teamtalk)
Liverpool og Arsenal eru tilbúin að lána Ayyoub Bouaddi (18) aftur til Lille ef þau kaupa hann í sumar, þar sem franska félagið vill halda honum í eitt tímabil til viðbótar. (Football Insider)
Mason Greenwood (24) er nálægt því að ganga til liðs við Fenerbahce. Tyrkneska félagið hefur sent tilboð bæði til Marseille og fulltrúa leikmannsins. (Sky Italy)
Crystal Palace og Fulham hafa áhuga á Shea Charles (22), leikmanni Southampton, en Leeds fékk tveimur tilboðum sínum hafnað í leikmanninn. (Sky Sports)
Aurelien Tchouameni (26) ætlar að vera áfram hjá Real Madrid og mun skrifa undir nýjan fimm ára samning. Félagið gaf lítið fyrir áhuga Man Utd. (AS)
Nottingham Forest hefur rætt við Feyenoord um hægri bakvörðinn Givairo Read (20), sem er einnig á blaði hjá Man City. (Daily Mail)
Torino hefur áhuga á að fá Lucas Perri (28) frá Leeds United eða Aaron Ramsdale (28) frá Southampton á láni. (Sky Italy)
Brentford og Tottenham fylgjast með Ousmane Diabate (18) og telja sig geta keypt hann frá Genclerbirligi í Tyrklandi fyrir um þrjár milljónir punda auk bónusgreiðslna. (Daily Mail)
Coventry er við það að kaupa varnarmanninn Aurele Amenda (22) frá Eintracht Frankfurt fyrir 17 milljónir punda. (Bild)
Aston Villa ætlar ekki að lækka verðmiðann á Emiliano Martínez (33), þrátt fyrir áframhaldandi áhuga Juventus á markverðinum. (BirminghamWorld)