
Milan greiðir 30 milljónir fyrir nýjan miðvörð (Staðfest)


Mynd: EPA


Mynd: EPA
AC Milan er búið að festa kaup á spænska miðverðinum Mario Gila sem kemur úr röðum Lazio fyrir 30 milljónir evra. Helmingurinn af kaupverðinu rennur til Real Madrid vegna söluákvæðis frá síðustu félagaskiptum leikmannsins.
Gila er 25 ára gamall og var á sínu síðasta samningsári hjá Lazio. Ýmis stórveldi hafa sýnt Gila áhuga á síðustu árum og gerir hann fimm ára samning við Milan.
Rúben Amorim nýr þjálfari Milan hefur miklar mætur á Gila sem hann telur henta fullkomlega í varnarlínuna í 3-4-3 leikkerfinu.

Rúben Amorim nýr þjálfari Milan hefur miklar mætur á Gila sem hann telur henta fullkomlega í varnarlínuna í 3-4-3 leikkerfinu.

TENGT EFNI
Milan vann kappið um Gila - Real fær helming
Strengthening the wall ????????? pic.twitter.com/dQwFChlVTs
— AC Milan (@acmilan) July 10, 2026


