Fotbolti.net
10.07.26 - 18:36
Ívan Guðjón Baldursson

Nicky Hayen tekinn við hjá Burnley (Staðfest)

Nicky Hayen tekinn við hjá Burnley (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Burnley er búið að ráða inn nýjan þjálfara eftir fall úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Michael Jackson bráðabirgðaþjálfari fékk ekki starfið, heldur hefur Nicky Hayen hefur verið ráðinn úr röðum belgíska félagsins KRC Genk.

Hayen er 45 ára Belgi sem vann efstu deild með Club Brugge 2023-24 og belgíska bikarinn ári síðar. Hann var valinn þjálfari ársins í Belgíu 2024 og gerði fína hluti við stjórnvölinn hjá Genk á síðustu leiktíð.

Hann gerir þriggja ára samning við Burnley og er markmið tímabilsins að komast aftur upp í deild þeirra bestu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.