Fotbolti.net
10.07.26 - 13:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Rúnar stefnir á að stýra liðinu gegn Þór - „Hefnd er ekki til í orðabókinni minni"

'Auðvitað hefði ég viljað vera á hliðarlínunni og í actioninu, dálítið skrítið að vera ekki á staðnum'

'Auðvitað hefði ég viljað vera á hliðarlínunni og í actioninu, dálítið skrítið að vera ekki á staðnum'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, var fjarri góðu gamni þegar Fram heimsótti Keflavík um síðustu helgi í Bestu deildinni. Helgi Sigurðsson, aðstoðarmaður Rúnars, stýrði Fram í hans fjarveru. Sá leikur endaði með 1-1 jafntefli.

Rúnar hefur verið að glíma við veikindi og ætlar að vera á hliðarlínunni þegar Fram tekur á móti Þór á sunnudag.
„Heilsan er fín, ég er orðinn betri og mun stýra æfingum í dag og fram að leiknum. Ég stefni á að vera á hliðarlínunni á sunnudag," segir Rúnar við Fótbolta.net í dag.

Treysti Helga 100%
Hvernig var að fylgjast með leiknum gegn Keflavík?

„Það er bara eins og að sitja upp í stúku og geta ekkert gert. Ég horfði á leikinn í gegnum spiideo vélina í Keflavík, þar sér maður alla leikmenn í einu, sést yfir allan völlinn. Það er samt alltaf óþægilegt að geta ekki stýrt liðinu. En ég treysti Helga 100% og hafði engar áhyggjur af því, hefði ekki getað gert mikið annað en hann var að gera. Það er æfingavikan sem skiptir mestu máli, hvað þú gerir á hliðarlínunni þegar leikurinn er hafinn breytir kannski ekki alltaf miklu. Þú getur stundum haft áhrif og stundum ekki. Auðvitað hefði ég viljað vera á hliðarlínunni og í actioninu, dálítið skrítið að vera ekki á staðnum."

„Nei, ég var ekki í sambandi við teymið í kringum leikinn. Ég lét Helga alveg stýra þessu, þetta var eins í fyrra þegar ég var í leikbanni, þá lét ég Helga stýra því frá A-Ö og var ekkert að blanda mér inn í það. Ég hefði hugsanlega gert það ef það hefði verið eitthvað mikið sem hefði þurft að breyta til, þá hefði ég reynt að koma skilaboðum til þeirra, en þess þurfti ekki."


Stigin eru farin og Þór tók þau
Ef horft er yfir fyrri hluta tímabilsins hjá Fram er líklegt að augun stoppi við tapið gegn Þór á útivelli í 3. umferð. Þar fyrir utan var stigasöfnun Framara mjög góð. Viltu að þínir menn svari fyrir það tap á sunnudaginn?

„Við nálgumst það ekkert sérstaklega þannig. Við spiluðum fínan leik, Þórsarar gerðu mjög vel sjálfir og við nýttum ekki okkar tækifæri til að skora mörk og markmaðurinn þeirra var mjög góður. Við hefðum getað gert betur í mörgum stöðum."

„Hefnd er ekki til í orðabókinni minni, þessi stig eru farin, Þór tók þau. Nú er bara nýr leikur og við þurfum að reyna snúa þessu við, fá stigin gegn þeim núna á sunnudaginn og reynt að gera betur í færanýtingunni en síðast gegn þeim."


Rúnar er spenntur að sjá Framarana í stúkunni á sunnudaginn.

„Það er alltaf gaman að spila á Fram vellinum, núna erum við búnir með tvo útileiki í röð. Það verður vonandi mikið af fólki sem kemur og styður okkur á sunnudaginn. Við erum á fínum stað og mér finnst strákarnir eiga skilið að fá smá stuðning á bakið svo við getum haldið áfram þessari vegferð sem við erum á," segir Rúnar.

Leikurinn á sunnudag hefst klukkan 18:00 og fer fram á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.
'Ég treysti Helga 100% og hafði engar áhyggjur af því'

'Ég treysti Helga 100% og hafði engar áhyggjur af því'

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins á VÍS vellinum í apríl. Glæsilegt mark.

Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins á VÍS vellinum í apríl. Glæsilegt mark.

Canon

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Fram situr í 3. sæti Bestu deildarinnar og á leik til góða á KR í 2. sætinu.

Fram situr í 3. sæti Bestu deildarinnar og á leik til góða á KR í 2. sætinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR14+1429
3Fram13+727
4Breiðablik13+722
5Valur14-319
6Keflavík13-616
7Stjarnan14-315
8ÍBV13-415
9ÍA13-815
10KA13-910
11FH13-138
12Þór13-218
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.