„Þetta var eins og í gamla daga þegar maður var að spila sjálfur"


Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson


Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

„Ég er bara hrikalega ánægður, þetta var bara baráttu sigur," sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu eftir 1-0 sigur gegn Leikni í kvöld.
„Það var ekki mikill fótbolti sem var spilaður hérna, en við vissum það að við þyrftum að vera yfir í baráttunni og klárir. Því við skorum yfirleitt mörk, þannig við þurftum að vera duglegir að verja markið okkar. Sem við gerðum, við héldum hreinu. Síðan fengum við þetta skemmtilega víti, við fengum svo kannski svona tvö hálf færi í seinni hálfleik. Þetta var bara baráttusigur, ég er hrikalega ánægður með leikina að fara í gegnum svona sigur. Þetta var eins og í gamla daga þegar maður var að spila sjálfur, á lélegum grasvöllum og í myrkri. Þetta var bara ótrúlega öflugur sigur hjá okkur," sagði Rúnar.
Leiknismenn voru meira með boltann og oft með boltann í kringum teig Gróttu manna, en náðu ekki að skapa sér mikið af færum.
„Það var bara helvítis kraftur í Leiknismönnum, og settu okkur undir mikla pressu. Við þurftum bara að spila leikinn svolítið einfaldan, þannig það var ekki mikið af fínu spili og annað slíkt. Þeir gerðu vel, en við náttúrulega bara unnum þennan leik. Ég ætla ekki að segja sanngjarnt, þetta hefði alveg verið sanngjarnt jafntefli miðað við hvernig leikurinn spilast. Við fórum með sigur af hólmi sem ég er mjög ánægður með," sagði Rúnar.
Dómara ákvarðanir voru afdrifaríkar í leiknum þar sem Grótta skoraði eina mark leiksins úr víti sem var heldur betur umdeilt.
„Ég sá nú ekki þetta víti, hann dæmdi nú frekar lítið í leiknum almennt. Lét leikinn bara halda áfram, hann dæmdi ekkert frekar á okkur heldur en Leiknismenn, þannig leikurinn fór bara svolítið þannig. Síðan dæmir hann víti sem ég sé ekki almennilega, það hlýtur að hafa verið eitthvað fyrst hann dæmir loksins. Þannig að ég get ekki dæmt til um það, við allaveg fengum víti sem við skoruðum úr, sem ég er mjög ánægður með," sagði Rúnar.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.



