Fotbolti.net
10.08.04 - 21:35
Hafliði Breiðfjörð

Di Canio til Lazio (Staðfest)

Di Canio til Lazio (Staðfest)
Canon
Paolo di Canio er hættur hjá Charlton og gekk í kvöld í raðir Lazio á frjálsri sölu. Di Canio sem er orðinn 36 ára gamall hóf ferilinn hjá Lazio árið 1985 en gekk síðar í raðir Juventus. Í yfirlýsingu Lazio sagði: ,,SS Lazio tilkynnir hér með að við höfum náð samkomulagi um að semja við Paolo di Canio á frjálsri sölu frá Charlton Athletic."
Di Canio sagði: ,,Ég hefði ekki sætt mig við neitt annað. Að vera í bláu og hvítu treyjunni á ný er eitthvað mjög sérstakt. Ég hef alltaf verið sannur Lazio stuðningsmaður, jafnvel þó ég hafi farið langt frá Róm á ferlinum."

Di Canio sem hefur lengi þótt skrautlegur á velli er einn sá þekktasti sem hefur komið í Hinni hliðinni á Fótbolti.net.

Smelltu hér til að sjá Hina hliðina á Paolo di Canio
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.