10.08.04 - 21:43
Magnús Már Einarsson
Carr til Newcastle (Staðfest)

Carr til hægri.


Carr til hægri.

Newcastle hefur gengið frá kaupum á Stephen Carr bakverði Tottenham. Kaupverðið var ekki gefið upp en það er talið vera ein milljón punda sem að hækkar upp í tvær eftir visst marga leiki. Carr sem að er 27 ára skrifaði undir fjögurra ára samning við Newcastle en hann var fyrirliði Tottenham á síðustu leiktíð. Hann kom til Tottenham ungur að árum eða árið 1992 en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi sínum.
Kappinn á 30 landsleiki að baki fyrir Íra og hefur verið lykilmaður hjá Tottenham síðustu ár.
