Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 11. febrúar 2021 20:50
Victor Pálsson
Walker viðurkennir að hann hafi skorað óvart
Mynd: Getty Images
Kyle Walker hefur viðurkennt það að hann hafi ekki ætlað að skora í gær er Manchester City spilaði við Swansea í enska bikarnum.

Walker skoraði mark á 30. mínútu í 3-1 sigri City en hann átti þá fyrirgjöf sem hafnaði óvænt í netinu.

Bakvörðurinn var ekki lengi að viðurkenna það að hann hafi ekki verið að skjóta á markið.

„Markið mitt var fyrirgjöf en við áttum skilið smá heppni miðað við hvernig við spiluðum. Ég er heppinn að hafa komist á blað," sagði Walker.

„Við höfum breytt aðeins til hvernig við pressum og hvernig við færum boltann. Stjórinn veit hvað hann vill. Hann hefur sannað þá hjá mörgum liðum og eins með City."

„Síðustu fjögur tímabil hafa verið mjög góð en við vorum sigraðir af frábæru Liverpool liði á síðustu leiktíð."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner