Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 11. maí 2026 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
De Zerbi: Mathys Tel er miður sín
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Roberto De Zerbi þjálfari Tottenham svaraði spurningum fréttamanna eftir 1-1 jafntefli gegn Leeds United í mikilvægum slag í fallbaráttunni.

Tottenham gat komið sér fjórum stigum frá fallsvæðinu með sigri og náði forystunni með laglegu marki frá Mathys Tel í upphafi síðari hálfleiks en Tel gerðist svo sekur um slæm mistök þegar hann braut af sér innan vítateigs. Leeds jafnaði úr vítaspyrnunni og hefði getað skorað sigurmark í uppbótartíma ef ekki fyrir frábæra markvörslu frá Antonín Kinský.

Tottenham er í fallbaráttu við West Ham og eiga bæði liðin tvo leiki eftir á deildartímabilinu. Spurs spilar lokaleikina við Chelsea og Everton á meðan Hamrarnir eiga leiki við Newcastle og Leeds.

„Við spiluðum góðan leik í kvöld. Þetta var ekki frábær frammistaða útaf því að það var mikil pressa á strákunum, við vorum ekki nógu rólegir í okkar leik. Við vildum vinna leikinn strax. Ég held að við þurfum að berjast til síðustu umferðar, þetta er rosaleg fallbarátta. Leeds spilaði vel gegn okkur og vonandi sýna þeir svipaða frammistöðu þegar þeir heimsækja West Ham í lokaumferðinni," sagði De Zerbi, sem var svo spurður út í vítaspyrnuna sem Tel gaf afar klaufalega frá sér með að reyna hjólhestaspyrnu til að hreinsa boltann úr vítateignum.

„Mér þykir mjög fyrir þessari vítaspyrnu sem við fengum á okkur og Mathys Tel er miður sín. Hann er ungur og hæfileikaríkur fótboltamaður sem skoraði frábært mark og gerði svo mistök, þannig getur fótboltinn verið. Þetta er ekki vandamál fyrir mig. Ég er ánægður með hugarfarið sem hann sýndi í þessum leik. Við spiluðum ekki frábæran leik og við þurfum að laga ýmsa hluti þegar kemur að hugarfarinu. Það er erfitt að vera í fallbaráttunni, það er öðruvísi pressa heldur en þegar maður er að berjast um meistaradeildarsæti."

De Zerbi tjáði sig einnig um dómgæsluna og var spurður út í stórt atvik seint í uppbótartímanum þegar James Maddison var felldur innan vítateigs.

„Mér fannst dómarinn ekki í réttu hugarástandi í dag, kannski var hann órólegur eins og strákarnir. Það hafði sem betur fer ekki mikil áhrif á leikinn, þetta var frekar vel dæmt. Ég vil ekki tjá mig um atvikið með James Maddison því ég sá það ekki. Við eigum skilið að halda okkar sæti í þessari deild og við munum berjast fyrir því til síðustu sekúndu. Þegar maður er í fallbaráttu þá skiptir máli að vera sterkur andlega frekar heldur en líkamlega.

„Mér fannst við eiga skilið að vinna í dag en að lokum þá þjáðumst við alltof mikið og gerðum alltof mörg mistök. Við erum með 8 stig úr síðustu 4 leikjum og þurfum að halda þessu áfram.

„Við erum með svo sterkan leikmannahóp að við verðum að halda sæti okkar í deildinni."


   11.05.2026 21:07
England: Mathys Tel hetjan og skúrkurinn í Tottenham



Ethan Ampadu's forehead injury after Tel's challenge
by
u/matathegamer in
soccer

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner
banner