Bayern á eftir ungstirni Bournemouth - Konate eftirsóttur
   mán 11. maí 2026 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
England: Mathys Tel hetjan og skúrkurinn í Tottenham
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tottenham 1 - 1 Leeds
1-0 Mathys Tel ('50 )
1-1 Dominic Calvert-Lewin ('74 , víti)

Tottenham Hotspur tók á móti Leeds United í gríðarlega mikilvægum fótboltaleik í dag. Heimamenn gátu komið sér í frábæra stöðu í fallbaráttunni með sigri en staðan var markalaus í hálfleik.

Tottenham var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik en tókst ekki að skora framhjá Karl Darlow. Þrátt fyrir yfirburði heimamanna fengu gestirnir frá Leeds besta marktækifærið, en Antonín Kinský varði meistaralega.

Í síðari hálfleik náðu heimamenn forystunni þegar Mathys Tel skoraði draumamark eftir hornspyrnu. Boltinn barst til Tel í vítateignum sem smellhitti hann og klíndi honum undir samskeytin með mögnuðu skoti.

Leeds sýndi betri hliðar í síðari hálfleik heldur en í þeim fyrri og skapaði hættu. Gestirnir gerðu jöfnunarmark á 74. mínútu eftir hrikaleg mistök hjá Mathys Tel í eigin vítateig.

Tel tók hörmulega ákvörðun þegar hann reyndi að hreinsa boltann úr teignum með hjólhestaspyrnu. Hann var búinn að sjá Ethan Ampadu, leikmann Leeds, hlaupa í áttina að sér, en ákvað samt að reyna að hreinsa með þessum hætti. Ampadu vann skallaboltann og sparkaði Tel í hann innan vítateigs svo dómarateymið gat ekki gert annað en að dæma vítaspyrnu. Dominic Calvert-Lewin skoraði örugglega af punktinum.

Tottenham reyndi að sækja sigurmark á lokakaflanum og var 13 mínútum bætt við í uppbótartíma, en sigurmarkið lét ekki sjá sig. Leeds komst næst því að stela sigrinum þegar Antonín Kinský varði marktilraun Sean Longstaff frábærlega í slána en inn vildi boltinn ekki.

Á 103. mínútu heimtuðu heimamenn vítaspyrnu eftir að James Maddison féll til jarðar innan vítateigs en Jarred Gillett dómari dæmdi hornspyrnu í staðinn. Atvikið var skoðað í VAR-herberginu en ákveðið að ekki væri um augljós mistök dómara að ræða þó það hafi verið augljós snerting innan teigs, en leikmaður Leeds náði fyrst að snerta boltann lítillega áður en hann felldi Maddison.

Lokatölur urðu því 1-1 og er Tottenham tveimur stigum frá fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir.

West Ham United á því enn góða möguleika á að bjarga sér frá falli.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner