England spilaði sinn síðasta æfingaleik fyrir HM í gær þegar liðið vann öruggan sigur á Kosta Ríka 3-0.
Anthony Gordon, nýjasti leikmaður Barcelona, átti frábæran leik en hann lagði upp fyrsta markið á Declan Rice og skoraði annað markið úr vítaspyrnu.
Anthony Gordon, nýjasti leikmaður Barcelona, átti frábæran leik en hann lagði upp fyrsta markið á Declan Rice og skoraði annað markið úr vítaspyrnu.
„Það er alltaf pressa þegar maður spilar fyrir England, eins og þú veist eru frábærir leikmenn sem bíða eftir að koma inn á af bekknum og hafa áhrif. Ef þú getur ekki tekist á við það þá ertu á röngum stað. Ég er að spila með frábærum leikmönnum svo þeir láta mig líta miklu betur út," sagði Gordon sem var ánægður að fá tækifæri til að taka vítaspyrnu.
„Ég var gríðarlega spenntur. Kane var farinn af velli. Ég var að reyna finna hann en þegar ég vissi að hann væri farinn af velli vildi ég taka á mig pressuna. Ég elska pressuna að taka víti."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





