Fotbolti.net
11.07.04 - 09:38

Edgar Davids búinn að velja sér lið (Staðfest)

Er farinn til Inter á frjálsri sölu

Er farinn til Inter á frjálsri sölu

Canon
Nú er loksins komið á hreint hvað verður um Edgar Davids. Varla hefur liðið sá dagur í allt sumar þar sem þessi frábæri miðjumaður hefur verið orðaður við hvert stórliðið á eftir öðru, en þessu lauk öllu í dag þegar hann skrifaði undir samning við Internazionale.
Hollenski landsliðsmaðurinn sem eyddi seinni helmingi seinasta tímabils í láni hjá Barcelona hafði, eins og áður sagði, verið orðaður við hvert liðið á eftir öðru á Ítalíu, Spáni og á Englandi eftir að samningaviðræður hans og Barcelona fóru út um þúfur.

Davids gaf sjálfur í skyn eftir EM að hann væri á leiðinni til Englands og voru Liverpool, Tottenham og Chelsea talin líklegust til að ná í þennan fyrrum leikmann Juventus.

Hins vegar hafa Inter alltaf verið mjög vissir um að þeir myndu ná í kappann og náðu þeir loksins að tryggja sér þjónustu hans á sunnudag, en Davids var efstur á óskalista Inter.

Davids skrifaði undir 3 ára samning við liðið frá Mílanó og forseti Inter Giacinto Facchetti var ánægður þegar samningurinn var í höfn.

"Við erum öll mjög ánægð með þetta. Það vita allir hvað Davids er góður, en ég vil undirstrika hvað hann gerði bara á nokkrum mánuðum hjá Barcelona. Hann sýndi að hann hafði baráttuna til að lyfta liðinu upp töfluna í annað sætið sem virtist óhugsandi áður en hann kom."

Þegar Facchetti var spurður hvort hann hefði þurft að leggja hart að sér til að ná í Davids sagði hann."Það var slatti af liðum í Evrópu, ekki bara Ítölskum liðum sem vildu hann. Samningslaus, gat Davids valið sér klúbb."

"Ef hann er hjá Inter í dag er ástæðan einföld. Hans val og okkar pössuðu saman strax frá upphafi. Og þá á ég að sjálfsögðu ekki við síðustu klukkutímana."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.