Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
banner
   sun 11. júlí 2021 02:45
Elvar Geir Magnússon
Myndir: Neymar grét eftir tap Brasilíu
Mynd: Getty Images
Lionel Messi og Neymar eru góðir vinir eftir samveru hjá Barcelona og féllust þeir í faðma eftir úrslitaleik Copa America í nótt.

Messi vann sinn fyrsta stóra titil með Argentínu en leikar enduðu 1-0 á Maracana leikvangnum.

Neymar hefur hinsvegar ekki náð þeim hæðum með landsliði Brasilíu eins og vonast var eftir og báru tilfinningarnar hann ofurliði eftir að hafa lotið í lægra haldi í nótt.

Neymar hefur aldrei unnið Copa America en hann missti af mótinu vegna meiðsla 2019 þegar Brasilía fagnaði sigri á heimavelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner