Fotbolti.net
11.07.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson

Everton festir kaup á Röhl (Staðfest)

Everton festir kaup á Röhl (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Everton er búið að festa kaup á þýska sóknartengiliðnum Merlin Röhl sem lék á láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Röhl er 24 ára gamall og borgar Everton 20 milljónir evra til að kaupa hann úr röðum Freiburg.

Rohl kom á lánssamningi með árangurstengdri kaupskyldu sem virkjaðist þegar Everton slapp við fall úr ensku úrvalsdeildinni.

Þjóðverjinn, sem lék 24 leiki fyrir yngri landsliðin, skoraði eitt mark í sextán deildarleikjum með Everton og gerir þriggja ára samning við félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.