Fotbolti.net
11.07.26 - 15:52
Brynjar Ingi Erluson

Fyrrum eigandi Chelsea látinn - Fékk Eið frá Bolton

Fyrrum eigandi Chelsea látinn - Fékk Eið frá Bolton
Canon

Mynd: Chelsea FC

Ken Bates, fyrrum eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea, er látinn 94 ára að aldri.
Bates er maðurinn sem kom Chelsea aftur í röð fremstu liða Englands. Hann keypti félagið fyrir eitt pund árið 1982, sem hljómar eins og gjöf en var alls ekki þannig. Chelsea var skuldum vafið og Bates tók við þeim skuldum.

Á 22 árum sem stjórnarformaður og eigandi Chelsea tókst honum að koma liðinu aftur upp í efstu deild og byggja upp sterkan hóp með leikmönnum á borð við Marcel Desailly, Gianfranco Zola, William Gallas, Frank Lampard, John Terry og Dennis Wise.

Þá má ekki gleyma því að Bates fékk Eið Smára Guðjohnsen til Chelsea frá Bolton Wanderers árið 2000.

„Það er með mikilli sorg og trega sem við greinum frá því að Ken Bates, fyrrum eigandi og stjórnarformaður Chelsea, er látinn.

Félagið sendir Suzannah, eiginkonu Ken, fjölskyldu hans og vinum dýpstu samúðarkveðjur.

Það mun aldrei gleymast sú áræðni sem Ken sýndi þegar hann barðist fyrir Chelsea á erfiðum tímum og kom félaginu aftur á sigurbraut,“
segir í tilkynningu Chelsea.

Bates seldi Chelsea til Roman Abramovich árið 2003 og keypti helmingshlut í Leeds tveimur árum síðar. Leeds fór í greiðslustöðvun árið 2007 og féll niður í C-deild, en komst aftur upp árið 2010.

Hann eignaðist allt hlutafé í félaginu ári síðar áður en hann seldi Leeds til Gulf Finance House og settist í helgan stein.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.