Fotbolti.net
11.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson

Jack Butland ver mark Hull (Staðfest) - Pandur til Rangers

Jack Butland ver mark Hull (Staðfest) - Pandur til Rangers
Canon

Mynd: EPA

Hull City hefur staðfest að Jack Butland muni verja mark liðsins í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.
Hull borgar 3,5 milljónir punda til að kaupa Butland úr röðum skoska stórveldisins Rangers.

Butland er 33 ára gamall og gerir tveggja ára samning við Hull, með möguleika á auka ári. Hann hefur meðal annars leikið fyrir Birmingham, Crystal Palace og Leeds United á ferlinum auk þess að hafa verið á láni hjá Manchester United í eitt tímabil, án þess að fá að koma við sögu.

Hann þótti mikið efni á sínum yngri árum og lék 9 A-landsleiki fyrir England eftir að hafa verið aðalmarkvörðurinn upp unglingalandsliðin.

Ivor Pandur, sem varði mark Hull City á síðustu leiktíð, fer til Rangers fyrir 6 milljónir punda.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.