Kennir Lammens um að hafa eyðilagt drauma þjóðarinnar

Senne Lammens fékk á sig mark seint í leiknum.

Mynd: EPA

Lammens kom inn sem varamaður.

Senne Lammens, markvörður Manchester United, gerði dýrkeypt mistök þegar Spánn skoraði sigurmarkið gegn Belgíu í 8-liða úrslitum HM í gær.
Á 71. mínútu var aðalmarkvörður Belga, Thibaut Courtois, tekinn af velli vegna meiðsla. Hann táraðist eftir skiptinguna og kom Lammens í markið í hans stað. Spánverjar skoruðu sigurmarkið á lokamínútunum, eftir mistök Lammens sem réði ekki nógu vel við langskot frá Pau Cubarsí.
Lammens fékk gagnrýni í belgískum fjölmiðlum en sú hvassasta var í dagblaðinu Le Soir þar sem segir að hann hafi eyðilagt drauma belgísku þjóðarinnar.
„Mér býður við því að við séum á heimleið eftir að hafa fengið svona mark á okkur. Senne Lammens getur ekki boðið upp á svona mistök. Ég hefði frekar viljað sjá 3-0 tap. Lammens kostaði okkur leikinn," segir í umfjöllun blaðsins.
„Hver veit hvað hefði gerst ef hann hefði ekki gert þessi mistök? Liðið mun taka utan um hann og segja 'við vinnum saman og við töpum saman'. En það eru engar afsakanir fyrir því sem gerðist."

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Annað dramatískt sigurmark hjá ofurvaramanninum
Courtois sýndi Lammens stuðning eftir mistökin.
„Ég gaf honum hlýtt faðmlag. Meira gat ég ekki gert. Hann er frábær markvörður og mun bara eflast við þetta. Hann er sterkur náungi, öflugur persónuleiki og ég er viss um að hann verði í fínu lagi. Hann fer núna í frí, fer svo til Manchester og mun eiga frábært tímabil. Ég er ekki í nokkrum vafa," sagði Courtois eftir leikinn.