Fotbolti.net
11.07.26 - 12:20
Brynjar Ingi Erluson

Man City sigraði Arsenal í baráttunni um Monga (Staðfest)

Man City sigraði Arsenal í baráttunni um Monga (Staðfest)
Canon

Mynd: Manchester City

Manchester City hefur gengið frá kaupum á enska unglingalandsliðsmanninum Jeremy Monga frá Leicester City fyrir 10 milljónir punda.
Monga, sem fagnaði 17 ára afmæli sínu í gær, skrifaði undir fimm ára samning við City í dag.

Englandsmeistarar Arsenal voru lengi vel í bílstjórasætinu í baráttunni um Monga, en hann ákvað að velja Man City sem kom seint inn í slaginn.

Monga þreytti frumraun sína með Leicester í ensku úrvalsdeildinni í apríl á síðasta ári og varð þar með annar yngsti leikmaðurinn til að koma við sögu í deildinni.

Hann varð síðan yngsti markaskorari ensku B-deildarinnar á síðustu leiktíð, aðeins 16 ára og 37 daga gamall, og tók þar með metið af Jude Bellingham.

„Þegar ég komst að því að Man City hefði áhuga vissi ég strax að þetta væri rétti kosturinn fyrir mig. Það er draumur að rætast fyrir hvern einasta ungan leikmann að verða hluti af þessu félagi.“

„Þetta hefur verið besta félag Englands síðasta áratuginn og þetta er félag sem hefur gefið ungum leikmönnum eins og Phil Foden og Nico O'Reilly tækifæri. Það sýnir að það er hægt að komast úr unglingaliðinu og upp í aðalliðið.“

Það eru mikil forréttindi að vera hér og ég er hæstánægður með að hafa gengið í raðir félagsins,“
sagði Monga.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.