Salah með of háar kröfur - Man Utd skoðar markvörð Paragvæ

Mo Salah vill fá himinhá laun í Sádi-Arabíu

Mynd: EPA

Orlando Gill er á óskalista Man Utd

Mynd: EPA

Karim Adeyemi er á leið til Barcelona

Það eru margir skemmtilegir molar í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Mohamed Salah (34), fyrrum leikmaður Liverpool, er sagður vera með of háar launakröfur að mati félaga í sádi-arabísku úrvalsdeildinni. Félög þar í landi eru hikandi við að mæta kröfum Egyptans. (Sun)
Bayern München hefur sagt Real Madrid að gleyma því að fá franska vængmanninn Michael Olise (24) í sumar. (Marca)
Karim Adeyemi (24), leikmaður Borussia Dortmund, er á leið til Barcelona fyrir 31 milljón evra. (Bild)
Arsenal og Liverpool berjast um Lutsharel Geertruida (25), hægri bakvörð RB Leipzig. Hann var á láni hjá Sunderland á síðustu leiktíð. (CaughtOffside)
Manchester City og Tottenham hafa áhuga á portúgalska vængmanninum Francisco Trincao (26), sem er á mála hjá Sporting í heimalandinu. Félögin gætu stolið honum undan Al-Ahli, sem er sagt hafa náð samkomulagi við Sporting um kaupverð. (Record)
Spánarmeistarar Barcelona ætla að leggja fram nýtt tilboð í argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez (26) eftir HM. Tilboðið mun nema um 130 milljónum evra. (Sport)
Nýliðar Hull City hafa lagt fram tilboð í Elliot Stroud (24), leikmann Svíþjóðarmeistara Mjällby og sænska landsliðsins. (Expressen)
Manchester United er að skoða það að fá tvo miðjumenn til viðbótar eftir að félagið gengur frá kaupum á Brasilíumanninum Andrey Santos (22) frá Chelsea. (Football Insider)
Gríski miðvörðurinn Kostas Mavropanos (28) er á óskalista fjölmargra félaga í ensku úrvalsdeildinni og víðar í Evrópu eftir að hafa staðið upp úr í föllnu liði West Ham á síðustu leiktíð. (Sky Sports)
Ítalska félagið Como er vongott um að ganga frá kaupum á kólumbíska varnarmanninum Davison Sanchez (30) frá Galatasaray, en telur 25,6 milljóna punda verðmiðann of háan. (Gazzetta dello Sport)
Man Utd er í leit að markverði sem getur veitt Senne Lammens (24) samkeppni á komandi leiktíð. Félagið gæti skoðað Paragvæann Orlando Gill (26), sem er sagður vera með 5,2 milljóna punda klásúlu í samningi sínum hjá argentínska félaginu San Lorenzo. (MEN)
Vonir Newcastle United um að landa enska markverðinum James Trafford (23) frá Man City hafa aukist þar sem Aston Villa ætlar sér að halda Argentínumanninum Emiliano Martínez (33). Chelsea hefur einnig áhuga á Trafford. (Chronicle)
Marco Silva, nýr þjálfari Benfica, vill fá fyrrum lærisvein sinn hjá Fulham, Joao Palhinha (31), til félagsins. Benfica er sagt undirbúa 25 milljóna evra tilboð. (Record)