Fotbolti.net
11.07.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Sunderland selur Mayenda fyrir 20 milljónir (Staðfest)

Mayenda í baráttu við Guglielmo Vicario.

Mayenda í baráttu við Guglielmo Vicario.

Canon

Mynd: EPA

Sunderland er búið að selja sóknarmanninn Eliezer Mayenda til Rennes fyrir 20 milljónir evra.
Mayenda er 21 árs gamall og reyndist mikilvægur hlekkur er Sunderland komst upp úr Championship deildinni í fyrra.

Honum mistókst að halda byrjunarliðssæti í liðinu eftir að komið var í ensku úrvalsdeildina. Hann kom við sögu í 23 leikjum er liðið náði mögnuðum árangri sem nýliði í úrvalsdeildinni, en tókst aðeins að skora tvö mörk.

Sunderland keypti Mayenda fyrir eina milljón evra fyrir þremur árum síðan af franska félaginu Sochaux, sem hélt 25% af endursöluvirði leikmannsins. Sochaux fær því um 5 milljónir í kassann við félagaskiptin.

Mayenda hefur skorað 2 mörk í 10 leikjum fyrir U21 landslið Spánar.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.