mið 11. september 2019 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Neymar eldri: Viðræðunum er ekki lokið
Neymar gæti endað hjá Barcelona
Neymar gæti endað hjá Barcelona
Mynd: Getty Images
Faðir brasilíska knattspyrnumannsins Neymar segir að viðræðum Paris Saint-Germain og Barcelona sé ekki lokið en hann sagði frá þessu á íþróttaráðstefnu í Edinborg í Skotlandi.

Neymar fór frá Barcelona til PSG árið 2017 en hann var þá keyptur fyrir 222 milljónir evra.

Barcelona og PSG voru í viðræðum í allt sumar en Börsungar gátu ekki gengið að verðmiða franska félagsins og mun því Neymar spila að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar með PSG.

Viðræðunum er þó ekki lokið og gæti vel farið svo að hann endi hjá Barcelona næsta sumar.

„Viðræður milli félaganna er ekki lokið. Brasilíumaðurinn vill bara vera þar sem hann er ánægður og hann var það hjá Barcelona. Þegar vinir hans spyrja hann hvort hann vilji ekki fara aftur þangað þá verður hann leiður," sagði Neymar eldri.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner