Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. október 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Özil lét Arsenal líta heimskulega út
Mynd: Getty Images
Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal, segir að Þjóðverjinn Mesut Özil hafi látið félagið líta býsna heimskulega út.

Özil hefur boðist til að borga laun Jerry Quy sem hefur leikið lukkudýrið Gunnersaurus síðan 1993. Gunnersaurus er risaeðla sem hefur haldið uppi stemningunni á heimaleikjum liðsins.

Quy hefur verið stuðningsmaður Arsenal síðan 1963 en hann missti starf sitt á dögunum líkt og 55 aðrir starfsmenn Arsenal.

Málið vakti mikla athygli en Özil, sem þénar 350 þúsund pund í laun á viku, hefur boðist til að borga laun Quy. Özil, sem er út í kuldanum hjá Arsenal, ætlar að greiða launin meðan hann er ennþá leikmaður félagsins.

Í samtali við Daily Star sagði Merson: „Mesut Özil hefur látið Arsenal líta ansi heimskulega út."

„Með því að reka lukkudýrið sýnir fólkið sem er á bak við félagið hversu eigingjarnt það er. Þú trúir því ekki hversu reiður ég er út af þessu. Í gamla daga var Arsenal vant því að sýna mikinn þokka. Eigendurnir vita örugglega ekki hvað það þýðir. Þeir sem tóku þá ákvörðun að reka lukkudýrið þurfa að líta vel og lengi í spegil."
Athugasemdir
banner