Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. október 2021 21:27
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stefán Teitur: Vorum búnir að tala um þessi hlaup
Icelandair
Stefán Teitur Þórðarson.
Stefán Teitur Þórðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Stefán Teitur Þórðarson fékk tækifæri í byrjunarliði Íslands gegn Liechtenstein í kvöld. Hann nýtti það tækifæri vel og skoraði fyrsta mark leiksins.

„Það var mjög tilfinning að fá að vita að maður væri að fara að byrja," sagði Stefán við RÚV eftir leik.

„Við vorum mjög á tánum í fyrri hálfleik og vorum að láta boltann ganga vel og hratt. Það vantaði kannski aðeins upp á það í seinni hálfleiknum. En það var geggjað að skora þetta mark og ég er mjög ánægður."

Stefán skoraði markið með skalla eftir virkilega flotta sendingu frá Jóni Degi Þorsteinssyni.

„Við vorum búnir að tala um þessi hlaup, að fá hann þarna frá gagnstæðum kanti. Þetta var bara geggjað."

Stefán var spurður út í síðasta markið þegar Guðjohnsen bræður unnu saman; Sveinn Aron lagði upp fyrir Andra Lucas. „Maður fær svona gott í hjartað að sjá þá skora þarna saman."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner