11.10.26 - 18:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Iraola: Skil alls ekki hvers vegna hann gefur gult spjald

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Andoni Iraola var allt annað en sáttur með rauða spjaldið sem Ryan Gravenberch fékk í tapi Liverpool gegn Man City í kvöld. Hann fékk tvö gul spjöld og margir eru á þeirri skoðun að annað eða jafnvel bæði hafi verið fyrir litlar sem engar sakir.
Gravenberch átti frábæran leik þar til hann var rekinn af velli eftir um klukkutíma leik.
„Hann spilaði virkilega vel í dag. Hann færði boltann vel og varðist mjög vel. Ég er mjög stoltur af leikmönnunum. Þetta var ekki auðvelt. Stuðningsmennirnir voru í toppklassa, til fyrirmyndar frá því við mættum," sagði Iraola.
„Fyrra gula spjaldið var ekki spjald. Anderson heldur áfram nokkur skref. Ég skil alls ekki hvers vegna hann gefur gult spjald. Við vorum með svona níu leikmenn fyrir aftan boltann."