Fotbolti.net
12.01.22 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Skoraði þrennu gegn gömlu félögunum - Ögraði stjóranum

Skoraði þrennu gegn gömlu félögunum - Ögraði stjóranum
Canon

Mynd: Getty Images

Lincoln vann Sunderland með þremur mörkum gegn einu í þriðju efstu deild á Englandi í gær.
Chris Maguire skoraði þrennu fyrir Lincoln en hann var látinn fara frá Sunderland þegar samningi hans við félagið lauk eftir síðustu leiktíð.

Hann fagnaði fyrsta markinu sínu með því að fara til Lee Johnson þjálfara Sunderland og ögra honum eitthvað.

Þetta var ekki dagurinn hans Johnson en hann var sendur upp í stúku seint í leiknum fyrir að riðjast inn á völlinn og gera athlögu að því að ráðast á leikmann Lincoln.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.