KA hefur tekið tilboði Breiðabliks í Guðjón Pétur Lýðsson.
Mbl.is greinir frá þessu en þar kemur fram að annað tilboð hafi borist í hann.
Mbl.is greinir frá þessu en þar kemur fram að annað tilboð hafi borist í hann.
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, hefur staðfest að tilboði Blika var tekið.
Guðjón þekkir vel til hjá Breiðabliki en hann lék með liðinu á árunum 2013 til ársins 2015. Hann hefur spilað með Val, Breiðabliki og Haukum hér á landi.
Hann gekk í raðir KA í vetur en í dag var tilkynnt að hann væri á förum af fjölskylduástæðum.
Athugasemdir