Þegar Arnar Þór Viðarsson tók við sem landsliðsþjálfari var tilkynnt að hann myndi tímabundið sinna áfram starfi sem yfirmaður fótboltamála hjá KSÍ samhliða.
Ekki hefur verið gefið út hvenær KSÍ hyggst ráða inn nýjan mann sem yfirmann fótboltamála en Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir þörf á því að ráða í starfið.
Ekki hefur verið gefið út hvenær KSÍ hyggst ráða inn nýjan mann sem yfirmann fótboltamála en Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir þörf á því að ráða í starfið.
„Það þarf einhver að taka við þessu. Arnar var að vinna mjög gott starf sem yfirmaður knattspyrnumála. Hann er svo ráðinn landsliðsþjálfari og við það getur hann ekki sinnt hinu starfinu áfram, að ég held," segir Rúnar Kristinsson en hann var gestur í útvarpsþættinum Fótbolti.net á laugardaginn.
„Það þarf að ráða einhvern annan í þetta starf. Ég held að það sé nánast skylda að öll knattspyrnusambönd þurfa að vera með mann sem gegnir þessu starfi. Ég vona að KSÍ finni einhvern í þetta starf því Arnar var að vinna mjög gott starf þarna. Honum var kippt úr því í rauninni og gerðu að landsliðsþjálfara svo nú þarf að finna einhvern annan."
Sjálfur segist Rúnar ekki hafa áhuga á starfinu.
„Ekki í dag nei, ég hafði áhuga þegar þetta var í bígerð snemma í ferlinu. Þá var þetta ekki orðið klárt og var áður en ég tók við KR síðast. Í dag hef ég ekki áhuga á þessu," segir Rúnar.
Athugasemdir