Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   þri 12. maí 2026 19:36
Elvar Geir Magnússon
Samskiptin í stærstu VAR ákvörðun sögunnar opinberuð
Howard Webb er ánægður með ferlið hjá dómurunum.
Howard Webb er ánægður með ferlið hjá dómurunum.
Mynd: EPA
Howard Webb og Michael Owen fara yfir málin.
Howard Webb og Michael Owen fara yfir málin.
Mynd: Skjáskot
Enska úrvalsdeildin hefur sýnt upptöku af samskiptum dómaranna í leik West Ham og Arsenal þegar sú risastóra ákvörðun var tekin að dæma jöfnunarmark West Ham ógilt. Talað er um þetta sem stærstu VAR ákvörðun sögunnar.

Hér má sjá og heyra samskipti dómaranna í þessu risastóra atviki

Howard Webb, yfirmaður dómaramála í ensku úrvalsdeildinni, segist ánægður með ferlið og niðurstöðuna hjá dómurunum og að um 'augljóst atvik' hafi verið að ræða.

Chris Kavanagh dómari leiksins dæmdi fyrst mark Callum Wilson gilt en eftir langa VAR skoðun var dæmd aukaspyrna á Pablo, leikmann West Ham, fyrir brot á David Raya markverði Arsenal.

Webb segir að aukaspyrnudómurinn hafi verið hárréttur og að kynnt hafi verið fyrir leikmönnum fyrir tímabil að refsa ætti fyrir viðlíka brot.

„Þegar besta sjónarhornið sést á myndbandi er ljóst að þetta eru augljós mistök eru að ræða. Þetta er ekki augljóst fyrir dómarann á vellinum því það er mikill fjöldi leikmanna í teignum og erfitt að sjá. Þegar VAR tekur eftir þessu verður að bregðast við," segir Webb.

„Þetta tekur sinn tíma því þeir bera virðingu fyrir leiknum mikilvægi þess að komast að réttri niðurstöðu. Þeir gera sér grein fyrir mikilvæginu. Réttilega beindi VAR dómaranum í skjáinn og það var ekki bara þetta atvik sem var skoðað heldur annað sem átti sér stað í teignum."

Arsenal leiðir baráttu við Manchester City um enska meistaratitilinn en West Ham berst við falldrauginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner