Fotbolti.net
11.05.26 - 12:54
Elvar Geir Magnússon

Tjáir sig um VAR atvikið umtalaða - „Algjörlega hárrétt ákvörðun“

John Cross, yfirmaður fótboltafrétta hjá Mirror.

John Cross, yfirmaður fótboltafrétta hjá Mirror.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

John Cross, íþróttastjóri dagblaðsins Mirror, hefur tjáð sig um atvikið sem allir eru að tala um; markið sem var dæmt af West Ham gegn Arsenal.

„Þetta var algjörlega hárrétt ákvörðun. Þetta var stærsta VAR ákvörðun í sögu ensku úrvalsdeildarinnar vegna þeirra áhrifa sem hún hafði á báðum endum töflunnar," segir Cross.
Sjáðu atvikið: Stærsta VAR ákvörðun sögunnar?
TENGT EFNI

Sjáðu atvikið: Stærsta VAR ákvörðun sögunnar?

„Fyrir Arsenal gæti þetta verið stundin sem ræður úrslitum um titilinn. Þetta gæti verið það sem sendir West Ham niður."

„Markið var dæmt af þar sem Pablo lagði handlegginn á David Raya. Það er klárlega brot. Dómararnir komust að réttri niðurstöðu. En af hverju tók þetta svona langan tíma? Sautján áhorf og fjórar mínútur og þrettán sekúndur í skoðun. Það er jafn furðulegt í mínum huga og brotið er augljóst. Þetta var góð VAR ákvörðun."

Callum Wilson jafnaði í 1-1 í uppbótartíma en eftir langa VAR skoðun Chris Kavanagh dómara var niðurstaðan sú að brotið hafi verið á David Raya, markverði Arsenal. Mikið er rætt um þetta risastóra atvik enda hefur það gríðarleg áhrif á titilbaráttuna og einnig fallbaráttuna þar sem West Ham situr í fallsæti.
Tjáir sig um VAR atvikið umtalaða - „Algjörlega hárrétt ákvörðun“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.