Sara Björk hlær: Þrjú stig á morgun!
Auglýsing

Sara á æfingu í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sara á æfingu í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

<i>„Þetta verður erfiður og krefjandi leikur en við bíðum spenntar,\"</I> sagði Sara Björk Gunnarsdóttir leikmaður íslenska landsliðsins við Fótbolta.net í dag fyrir vináttuleikinn gegn Brasilíu annað kvöld.
Sara sagði í viðtali við Sporttv eftir vináttuleikinn gegn Írum að það hefði verið svekkjandi að ná ekki í þrjú stig. Engin þrjú stig voru þó í boði þar sem um vináttuleik var að ræða.
„Ég er svo mikil keppnismanneskja að ég vil alltaf ná í þrjú stig. Maður er fastur í frösunum. Þrjú stig á morgun,\" sagði Sara og hló.
Marta, fyrrum liðsfélagi Söru, og ein besta knattspyrnukona í heimi er í liði Brasilíu.
„Hún er frábær leikmaður og við verðum að stoppa hana. Það verður gaman að hitta hana,\" sagði Sara.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.