Jeffs eftir Íslandsmeistaratitilinn: Það er eitthvað í kúltúrnum hjá Breiðablik


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik varð Íslandsmeistari í þriðja sinn í röð í kvöld eftir 0-1 sigur á Stjörnunni á Samsungvellinum. Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks, ræddi við Fotbolta.net eftir leikinn.
..Mér líður bara mjög vel. Þetta var ekki okkar besti leikur á þessu tímabili, en við gerum nóg til þess að klára þetta, frábært að halda hreinu. Erfitt að lýsa þessum tilfinningum núna, þetta er geggjað."
„Þrátt fyrir stórar breytingar frá síðasta tímabili erum við búin að halda liðinu á sama stað. Sem er virkilega stórt hrós á alla í Breiðablik sem eru búin að hjálpa okkur, þjálfarateymi, staffið og leikmenn, eiga öll hrós skilið."
„Við vorum ekki að leggja upp leikinn til þess að ná jafntefli, þú gerir það aldrei. Okkar markmið í dag var að vinna leikinn. Við settum okkur markmið fyrir úrslitakeppni að vinna þessa fimm leiki sem voru eftir."
„Deildin er búin að jafnast út. Það er búin að vera tíu lið sem eru á svipaðri getu og við. Við eigum alltaf erfiða leiki, hvort sem það er við lið sem er í neðra sæti eða efra, þetta er búið að vera hörku deild. Við erum búin að ná svona ákveðnum stöðugleika í okkar leik."
„Það er eitthvað í Breiðablik, ég fann fyrir því strax, það er eitthvað í kúltúrnum hjá Breiðablik, væntingar og pressa til þess að vinna titil."
„Breiðablik er, sérstaklega kvennamegin undanfarin ár, það eru væntingar til þess að vinna Íslandsmeistaratitil. Ég fann alveg fyrir því, en á móti þessu þá er búið að vera stórar breytingar í leikmannahópnum. Við komum inn seint, þegar evrópukeppnin var að klárast í nóvember. Margir leikmenn sem ákváðu að fara í atvinnumennsku, við misstum hátt upp í tíu meistaraflokksleikmenn frá síðasta tímabili í fyrra. Við áttum ekki rosa mikinn tíma til þess að fá nýja leikmenn inn, það fór svolítið seint af stað þegar nýja þjálfarteymið var komið inn og ég var ráðinn. En það var samt sama pressa og væntingar að vinna titil."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
