Fotbolti.net
19.10.26 - 19:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Araujo: Ég er mjög ánægður hjá Liverpool

Araujo: Ég er mjög ánægður hjá Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Ronald Araujo gekk til liðs við Liverpool á láni frá Barcelona í sumar en það er kaupmöguleiki í samningnum. Araujo líður vel en er ekki að horfa of langt fram í tímann.
„Ég er mjög ánægður hérna, fjölskyldan er líka mjög ánægð en það er of snemmt að ræða þetta eitthvað," sagði Araujo.

Hann hefur komið vel inn í liðið og skoraði sitt fyrsta mark í síðustu viku gegn LASK í Meistaradeildinni.

„Það er ekki auðvelt að koma til Liverpool. Það eru þessar kröfur, þessi ábyrgð. Ég öðlaðist reynslu af því hjá Barcelona. Þetta fer eftir persónuleika hvers og eins og hvernig þeir takast á við þessa áskorun. Ég vissi að það væri áskorun að fara í úrvalsdeildina en ég efaðist aldrei um að ég þyrfti að gefa allt í þettaa," sagði Araujo.

„Það er ekki auðvelt að vera hjá stórliðum en það er það sem ég kom til að gera."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.