Fotbolti.net
12.07.26 - 00:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

„Algjör þvæla að dæma þetta mark af"

Erling Haaland var dæmdur brotlegur

Erling Haaland var dæmdur brotlegur

Canon

Mynd: EPA

Það var mikið um umdeild atvik þegar England vann Noreg í 8-liða úrslitum á HM í kvöld.

Staðan var 1-1 í hálfleik en Torbjörn Heggem skoraði eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik eftir hornspyrnu. Markið var hins vegar dæmt af þar sem Erling Haaland hrinti Elliot Anderson.
Mark dæmt af Noregi - Rooney segir að England hafi sloppið með skrekkinn
TENGT EFNI

Mark dæmt af Noregi - Rooney segir að England hafi sloppið með skrekkinn

Clement Turpin, dómari leiksins, fór í skjáinn og dæmdi markið af. Ákvörðunin var umdeild, það var umræða um atvikið í HM kvöldi á RÚV.

„Mér fannst þetta 'soft' í augnablikinu en ég skil fyrst hann var sendur í skjáinn að þetta hafi verið dæmt af," sagði Arnar Gunnlaugsson.

„Þarna á ákvörðunin á vellinum að standa, mér fannst þetta hreint dæmi um að þetta væru ekki hrein og bein mistök. Það eru alltaf einhverjar ýtingar inn í teig. Það er hættulegt að fara dæma mark af út af þessu. Mér fannst algjör þvæla að dæma þetta mark af," sagði Albert Brynjar Ingason.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.