Haaland: Vel gert Bellingham og dómari

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Alf Inge Haaland, pabbi Erling Haaland, landsliðsmanns Noregs, var allt annað en sáttur eftir tap norska landsliðsins gegn Englandi í 8-liða úrslitum á HM í gær.
Jude Bellingham skoraði tvennu fyrir England í 2-1 sigri en sigurmarkið kom í framlengingu.
Norðmenn voru allt annað en sáttir með Clement Turpin, dómara leiksins. Mark Torbjörn Heggem eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik var dæmt af. Erling Haaland hrinti Elliot Anderson en margir telja að það hafi ekki átt að vera brot.
Þá virtist Örjan Nyland, markvörður norska liðsins, sparka boltanum upp í vír sem heldur myndavélinni á lofti fyrir ofan völlinn. Þá hefði þýtt að Turpin hefði átt að taka boltann og setja hann niður eins og gerist þegar boltinn fer upp í loft innanhúss.
Fabrizio Romano birti færslu þar sem hann dásamar Bellingham fyrir frammistöðu sína. Alf Inge svaraði honum kaldhæðnislega.
„Vel gert Bellingham og dómari," skrifaði sá norski.

Well done Bellingham and referee.
— Alfie Haaland (@alfiehaaland) July 11, 2026