Fotbolti.net
12.07.26 - 12:02
Brynjar Ingi Erluson

Landsliðsþjálfari Senegal látinn taka poka sinn (Staðfest)

Landsliðsþjálfari Senegal látinn taka poka sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Senegalska fótboltasambandið hefur leyst þjálfarann Pape Thiaw undan störfum eftir vonbrigði liðsins á heimsmeistaramótinu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó.
Thiaw tók við Senegal árið 2024 og tókst að vinna Afríkukeppnina með liðinu í upphafi árs.

Titillinn var reyndar tekinn af Senegal eftir að leikmenn liðsins gengu af velli í úrslitaleiknum og Marokkó var krýnt meistari í staðinn. Það mál er þó enn í ferli og Senegal á enn möguleika á að fá titilinn aftur.

Á HM hafnaði Senegal í 3. sæti í riðli með Frökkum og Norðmönnum og fór áfram sem eitt þeirra átta liða sem náðu bestum árangri í þriðja sæti. Mótherjinn í 32-liða úrslitum var Belgía.

Senegal komst í 2-0 forystu í þeim leik, en glutraði henni niður undir lokin og tapaði 3-2 eftir framlengingu.

Thiaw hefur nú verið látinn taka poka sinn, en senegalska sambandið hefur ekki enn fundið arftaka hans.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.