Man Utd og Getafe fá pening fyrir Greenwood

Mynd: Marseille

Mynd: EPA

Mynd: Marseille
Fenerbahce er að ganga frá kaupum á enska kantmanninum Mason Greenwood fyrir um 50 milljónir evra og fá hans fyrrum félög væna fúlgu fjárs í sína vasa vegna endursöluákvæða.

TENGT EFNI
Bjóða rúmlega 40 milljónir fyrir Greenwood
Marseille borgaði um 30 milljónir evra til að kaupa Greenwood úr röðum Man Utd og er talið að Rauðu djöflarnir hafi haldið 50% af endursölurétti leikmannsins, en þó aðeins af hagnaði endursölunnar frekar en heildarupphæðinni.
Man Utd fær því um 10 milljónir fyrir söluna á Greenwood til Fenerbahce og rennur 20% af þeirri upphæð til Getafe vegna sérstaks endursöluákvæðis.
Getafe, sem sá um 'endurhæfingu' Greenwood skömmu eftir ofbeldisskandal á Englandi, fékk 6 milljónir fyrir félagaskipti kantmannsins til Marseille og bætast 2 milljónir við núna.

Staðfesti yfirvofandi félagaskipti Greenwood

Mynd: EPA