Úlfarnir höfnuðu tilboði frá Fiorentina

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nígeríski framherjinn Tolu Arokodare er eftirsóttur af nokkrum félagsliðum eftir fall með Wolves úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Arokodare er 25 ára framherji sem á þrjú ár eftir af samningi hjá Wolves, með möguleika á auka ári. Hann skoraði 6 mörk í 38 leikjum á sínu fyrsta tímabili með Úlfunum eftir að þeir keyptu hann úr röðum Genk fyrir um 27 milljónir evra.
Fiorentina, sem Albert Guðmundsson spilar fyrir á Ítalíu, hefur áhuga á honum en Úlfarnir höfnuðu lánstilboði frá félaginu sem innihélt kaupmöguleika.
Trabzonspor hefur líka sýnt mikinn áhuga en Nígeríumaðurinn vill ekki skipta til Tyrklands. Hann vill spila á hæsta mögulega gæðastigi.