Fotbolti.net
12.08.17 - 18:47
Arnar Daði Arnarsson

Briem: Menn voru ekkert að láta grípa sig í bólinu

Auglýsing
Hafsteinn Briem gat ekki verið með í dag vegna meiðsla.

Hafsteinn Briem gat ekki verið með í dag vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
Hafsteinn Briem, leikmaður ÍBV þurfti að horfa á liðsfélaga sína landa sigri gegn FH í úrslitum bikarsins úr stúkunni vegna meiðsla.
„Þetta er öðruvísi en ég held að þetta sé samt alveg jafn sætt. Að sjá strákana leggja sig svona mikið fram og halda þetta út, það er alveg magnað,\" sagði Briem sem var ánægður með fyrri hálfleikinn.

„Fyrri hálfleikurinn var frábær og síðan náðu þeir að halda þessu í seinni hálfleik, þetta er frábært.\"

Haffi var ánægður með stuðninginn sem liðið fékk úr stúkunni.

„Hún var geggjuð. Ég fékk að taka þátt úr stúkunni og það er ógleymanlegt. Ég vil þakka öllum Eyjamönnum sem komu og lönduðu þessu með okkur.\"

Briem var ánægður með samstöðuna í hópnum fyrir leiknum og sagði að liðið hafi ekki viljað upplifa vonbrigðin aftur, eftir tapið gegn Val í bikarúrslitunum í fyrra.

„Menn voru ekkert að láta grípa sig í bólinu. Menn vissu að það hvernig er að tapa úrslitaleik eftir vonbrigðin í fyrra. Við vildum klára þetta núna og menn voru staðráðnir í að mæta almennilega til leiks.\"

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.