12.08.26 - 09:37
Elvar Geir Magnússon
Dómarinn aldrei verið eins mikið í sviðsljósinu

Omar Artan og hans teymi æfa á keppnisvellinum.

Mynd: EPA

Sómalinn síkáti Omar Abdulkadir Artan.

Sómalíski dómarinn Omar Artan mun dæma leikinn um Ofurbikar Evrópu í kvöld þar sem Paris Saint-Germain og Aston Villa eigast við í Salzburg í Austurríki.
Fyrir tveimur mánuðum var hann aðalnafnið í heimsfréttunum eftir að honum var neitað um inngöngu í Bandaríkin þar sem hann átti að dæma á heimsmeistaramótinu.
Bandarísk yfirvöld sögðust hafa fundið vísbendingar um að hann tengdist hryðjuverkasamtökum. Artan var valinn dómari ársins í Afríku á síðasta ári og sagði að stærsti draumur lífs síns hafi verið tekinn af sér. Honum var neitað um inngöngu þrátt fyrir að vera með vegabréfsáritun.
Þessi ákvörðun Bandaríkjastjórnar og Donald Tump hlaut harða gagnrýni um allan heim. Artan fékk höfðinglegar móttökur þegar hann mætti aftur heim til Sómalíu í sumar.

TENGT EFNI
Sómalíski dómarinn fékk höfðinglegar móttökur þegar hann kom heim
Eftir þessa atburðarás bauð fótboltasamband Evrópu, UEFA, Artan að dæma leikinn um Ofurbikarinn þar sem sigurvegarar Meistaradeildarinnar leika gegn sigurvegurum Evrópudeildarinnar.
Aleksander Ceferin, forseti UEFA, segir Artan hafa sannað sig á stærsta sviði í Afríku og vill sýna honum þá virðingu sem hann á skilið.
„Fótbolti snýst um að sameina fólk og UEFA vill sýna Omar virðingu,“ var m.a. haft eftir Ceferin en hann og Gianni Infantino, forseti FIFA, hafa verið að elda grátt silfur saman.