Talsmaður Bandaríkjastjórnar segir að ástæðan fyrir því að sómalíska dómaranum Omar Artan var meinaður aðgangur að Bandaríkjunum sé sú að hann sé tengdur aðilum sem eru grunaðir sem meðlimir í hryðjuverkasamtökum.
Artan átti að vera meðal dómara á HM en eftir langa yfirheyrslu á flugvellinum í Miami var honum bannaður aðgangur að landinu.
Sómalía er eitt af þeim löndum sem strangar ferðatakmarkanir gilda um eftir reglur sem stjórn Donald Trump setti.

Artan sagði við New York Times í vikunni að landamæraverðir hefðu spurt hann út í tengsl við sómölsku vígasamtökin Al Shabab og að hann hefði sagt þeim að hann tengdist þeim ekki á nokkurn hátt.
Artan, sem er 34 ára, hefði verið fyrsti dómarinn frá Sómalíu til að dæma á HM en hann segist nú setja stefnuna á að dæma á HM 2030.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!