12.08.26 - 15:07
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður Everton ákærður fyrir veðmálabrot

Martin Sherif.

Mynd: Port Vale

Martin Sherif.

Mynd: Port Vale
Enska fótboltasambandið hefur ákært Martin Sherif, sóknarmann Everton, fyrir meint brot á reglum um veðmál á 15 mánaða tímabili.
Þessi tvítugi leikmaður er sakaður um að hafa lagt undir 61 veðmál á leiki á tímabilinu frá 20. nóvember 2024 til 12. febrúar 2026.
Sóknarmaðurinn, sem er fæddur í Líberíu, gekk til liðs við unglingalið Everton árið 2019 og hóf æfingar með aðalliðinu snemma árs 2025.
Sherif fór á láni til Rotherham United í C-deildinni síðasta sumar og skoraði tvö mörk í 10 leikjum, en var kallaður til baka í desember eftir að hafa glímt við röð meiðsla.
Í febrúar gekk hann til liðs við Port Vale á láni út tímabilið og skoraði tvö mörk í 17 leikjum í C-deildinni, en liðið féll úr deildinni.