12.09.20 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kasakstan: Rúnar Már skoraði bæði mörk Astana

Rúnar Már Sigurjónsson.

Mynd: Getty Images

Rúnar Már Sigurjónsson.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum í úrvalsdeildinni í Kasakstan í dag.
Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði bæði mörk Astana þegar liðið hafði betur gegn Ordabasy á útivelli.
Rúnar kom Astana yfir úr vítaspyrnu snemma í síðari hálfleik og bætti við marki stuttu síðar. Ordabasy náði að minnka muninn á 70. mínútu en komst ekki lengra en það.
Lokatölur 2-1 fyrir Astana sem er í öðru sæti eftir sjö leiki með 14 stig.
Rúnar missti af síðustu landsleikjum vegna meiðsla. Hann gerir væntanlega tilkall í hópinn í næsta mánuði þegar við mætum Rúmeníu í umspili fyrir EM.