Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 12. september 2022 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Real Madrid vill framlengja við Ancelotti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Carlo Ancelotti gerðist stjóri Real Madrid í annað sinn á ferlinum á síðasta ári eftir að hafa stýrt Everton í eitt og hálft ár.


Ancelotti stýrði Real einnig frá 2013-2015. Hann hefur unnið spænsku deildina einu sinni og spænska bikarinn einu sinni. Þá hefur hann unnið Meistaradeildina tvisvar.

Hann skrifaði undir þriggja ára samning í fyrra en samkvæmt heimildum Marca er félagið tilbúið að framlengja samning hans til ársins 2025 eða 2026.

Ancelotti sem er 63 ára hefur áður sagt að Real Madrid verði síðasta félagið sem hann muni stýra á ferlinum.


Athugasemdir
banner
banner
banner