13.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Leeds samþykkir tilboð City í Fowler (Staðfest)
Leeds United samþykktu í dag að selja Robbie Fowler til Mancheser City á 7 milljónir punda. Félagið staðfesti nú undir kvöld svo að samkomulagið hafi náðst og að George Scott umboðsmaður Fowler muni ræða við David Bernstein seinna í kvöld. Scott er erlendis sem stendur en tekur fyrstu vél heim til að ræða launamál Fowler við Bernstein. Fowler hefur verið mikið meiddur upp á síðkastið en samtals lék hann 32 leiki með Leeds og skoraði 14 mörk. Hann kom til Leeds 29.nóvember 2001 frá Liverpool.
