Ungir leikmenn U18 ára liðs Clevedon voru í skýjunum þegar goðsögnin David Beckham mætti til að horfa á leik með liðinu.
Það er nóg að gera hjá Beckham um þessar mundir en verið er að gera allt klárt fyrir þátttöku Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni. Beckham stofnaði félagið.
Það er nóg að gera hjá Beckham um þessar mundir en verið er að gera allt klárt fyrir þátttöku Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni. Beckham stofnaði félagið.
Þrátt fyrir þétta dagskrá gaf Beckham sér tíma til að horfa á son sinn, hinn 17 ára Romeo Beckham spila leikinn.
Beckham stóð einn í stúkunni stærstan hluta leiksins en eftir leikinn sat hann fyrir á bolamyndum með aðdáendum og spjallaði við leikmennina ungu.
Athugasemdir