Man Utd með mörg járn í eldinum - PSG blandar sér í baráttuna um Baleba - Tottenham vill Pulisic
   fös 13. febrúar 2026 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Vildi feta í fótspor föður síns og spila með ÍBV í efstu deild
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: ÍBV
Ian Jeffs.
Ian Jeffs.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Liam Daði Jeffs var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður ÍBV. Hann er keyptur frá Þrótti og snýr aftur til Eyja eftir fjögur tímabil í Laugardalnum.

Liam Daði er fæddur árið 2006 og er uppalinn í Eyjum, þreytti frumraun sína í meistaraflokki 2021 með ÍBV. Hann ræðir við Fótbolta.net um félagaskiptin.

„Tilfinningin að vera leikmaður ÍBV er mjög góð. Það sem heillaði mig mest var að fá tækifæri að spila með ÍBV í efstu deild og feta í fótspor pabba," segir Liam Daði sem er sonur Ian Jeffs sem lék lengi vel með ÍBV; 2003-2007 og svo aftur 2011-2016. Móðir hans, Sigríður Ása Friðriksdóttir, lék einnig með ÍBV á sínum tíma.

Liam Daði skoraði tíu mörk í 24 leikjum í Lengjudeildinni á síðasta tímabili eftir að hafa skorað fjögur mörk í ellefu leikjum 2024.

„Auðvitað var erfitt að fara frá Þrótti, en ég taldi þetta vera rétta ákvörðun núna að fara aftur heim til Eyja. Ég var mjög sáttur við minn tíma í Laugardalnum."

Ræddir þú við þjálfarann Sigurvin Ólafsson áður en þú tókst ákvörðun?

„Já, ég og Venni tókum spjall og það löbbuðu allir sáttir frá borði."

Hvernig var aðdragandinn að skiptunum? Það var fjallað um áhuga ÍBV snemma í desember en svo heyrðist ekkert fyrr en í gær.

„Það hefur verið áhugi í svolítið langan tíma en maður þurfti bara að vera þolinmóður og þetta gekk upp að þessu sinni. Ég fékk að heyra frá umboðsmanninum mínum um mánaðamótin nóvember/desember að það væri áhugi. Síðan hætti Láki sem þjálfari ÍBV og þá kom smá pása í þessu. En þegar nýr þjálfari var ráðinn þá fór eitthvað meira að gerast."

Hvernig líst þér á Eyjaliðið og hvert er markmiðið í sumar?

„Mér líst mjög vel á Eyjaliðið og er mjög spenntur að fara vinna með þessu liði. Markmiðið mitt í sumar er bara að skora mörk og njóta þess að spila aftur fyrir ÍBV. Markmiðið í sumar er alltaf að gera betur en í fyrra og reyna að ná topp sex í ár."

Hver er þín besta staða á vellinum?

„Mín besta staða er framherji, mér líður best þar og spila best þar," segir Liam Daði að lokum.
Athugasemdir
banner
banner