07.11.26 - 12:19
Brynjar Ingi Erluson
Skotmark Chelsea og Liverpool ekki til sölu

Mynd: Brentford

Mynd: Brentford
Senegalski vinstri bakvörðurinn El-Hadji Malick Diouf, leikmaður Brentford á Englandi, verður ekki til sölu í janúarglugganum samkvæmt heimildum TeamTalk.
Diouf er 21 árs gamall og gekk til liðs við Brentford frá West Ham fyrir 40 milljónir punda í sumar.
Hann hefur þó fengið takmörkuð tækifæri á tímabilinu, enda hefur Englendingurinn Keane Lewis-Potter verið í fantaformi. Því er hins vegar haldið fram að Brentford vilji gefa Diouf tíma til að aðlagast nýju umhverfi í stað þess að henda honum beint í byrjunarliðið.
Samkvæmt TeamTalk kemur ekki til greina að selja Diouf í janúarglugganum og þyrfti gríðarlega hátt tilboð til að fá Brentford til að íhuga sölu á honum yfir höfuð.
Félagið lítur á Senegalann sem mikilvægan framtíðarleikmann, en hann er samningsbundinn Brentford til ársins 2031 með möguleika á eins árs framlengingu.
Chelsea og Liverpool voru bæði mjög hrifin af frammistöðu hans með senegalska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í sumar, auk þess sem hann vakti athygli með West Ham á síðustu leiktíð þar sem hann lagði upp fimm mörk.
Diouf er dýrasti leikmaður í sögu Brentford og er talinn eiga gríðarlega mikið inni. Þrátt fyrir að hafa ekki náð að festa sig í sessi hjá félaginu gæti hann því orðið eftirsóttur þegar félagaskiptaglugginn opnar næsta sumar.