Fotbolti.net
07.11.26 - 11:22
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Leeds og Tottenham: Porro inn fyrir Solanke

Pedro Porro byrjar hjá Tottenham

Pedro Porro byrjar hjá Tottenham

Canon

Mynd: EPA

Leeds og Tottenham eigast við í 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 12:30 á Elland Road í dag.
Leeds hefur ekki unnið í síðustu fimm deildarleikjum sínum á meðan Tottenham er komið á gott skrið og hefur unnið þrjá leiki í röð eftir annars slaka byrjun á tímabilinu.

Heimamenn gera tvær breytingar frá 2-0 tapinu gegn Bournemouth. Sean Longstaff og Lukas Nmecha koma inn í byrjunarliðið í stað Daniel James og Harry Wilson, sem taka sér sæti á bekknum.

Dominic Calvert-Lewin er fremstur en óvissa ríkti með þátttöku hans fyrir leikinn.

Aðeins ein breyting er á byrjunarliði Tottenham, en spænski bakvörðurinn Pedro Porro kemur inn í stað Dominic Solanke, sem sest á bekkinn.

Leeds: Trafford; Justin, Elvedi, Muharemovic; Bogle, Ampadu, Longstaff, Gudmundsson; Tanaka, Nmecha; Calvert-Lewin

Tottenham: Kinsky; Pedro Porro, Van Hecke, Van de Ven, Robertson; Fernandes, Gray, Tonali; Kudus, Marmoush, Tel.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry10-99
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.