07.11.26 - 11:44
Brynjar Ingi Erluson
Flugfélag heiðrar Ronaldo með óvenjulegum hætti

Cristiano Ronaldo

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo

Mynd: EPA
Hollenska lággjaldaflugfélagið Transavia hefur ákveðið að heiðra Cristiano Ronaldo eftir að hann lagði landsliðsskóna á hilluna með því að taka eitt sæti úr umferð í flugferðum sínum til Funchal í Portúgal.

TENGT EFNI
Ronaldo hættur með landsliðinu (Staðfest)
Ronaldo lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Portúgal árið 2003 og hefur síðan þá unnið þrjá titla með landsliðinu. Alls lék hann 234 landsleiki og skoraði 146 mörk á sínum 23 ára landsliðsferli.
Hann ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir að hafa lent upp á kant við Jorge Jesus, þjálfara Portúgals, og hefur jafnframt hafnað því að spila kveðjuleik með landsliðinu.
Ronaldo hefur fengið kveðjur úr öllum áttum eftir ákvörðunina og eru fyrirtæki nú farin að heiðra feril hans með ýmsum skemmtilegum uppátækjum.
Flugfélagið Transavia hefur til að mynda ákveðið að hætta að nota sæti 7C í flugferðum sínum til Funchal á Madeira, heimabæjar Ronaldo.
„CR7 hefur lagt skóna á hilluna og því höfum við einnig ákveðið að leggja sæti 7C á hilluna í flugferðum okkar til Funchal,“ segir í tilkynningu frá Transavia.