Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Steig inn þegar markvörðurinn fór til Liverpool - „Lífið er geðveikt"
Karólína nýtur sín í æðislegri borg - „Smá Ítalí í mér"
18 ára að festa sig í sessi - „Þarf að drífa mig upp á herbergi að plana atriði"
Orðsporið farið stækkandi í Svíþjóð - „Þetta er annað heimili mitt"
Átti að vera árið hans Sölva - „Víkingur væri að berjast í efri hlutanum í Superligunni"
Ætlar að berjast við Árna um stöðuna - „Þurfti aðeins að klípa mig“
Venni: Fótboltinn breytist ekkert þó ég kaupi einhverja menn eða við spilum með ákveðnum hætti
Ray: Ég held að það sé bara bjart framundan hjá okkur
Kári Kristjáns: Mér líður bara ógeðslega vel hérna
Sjáðu rauða spjaldið á Brynjar Björn - „Síðasti séns að sjá þetta trix"
Sterkastur í 9. umferð - „Þetta var upp á líf og dauða fyrir okkur“
Maggi er ósáttur með mark Fylkis: Boltinn var aldrei inni
Heimir: Þurfum að setjast niður og læra af þessu
Sölvi Geir: Það fór smá um mann
Seinn á fund í gær en skoraði þrennu í kvöld: Fokking mikil sekt
Hemmi: Helvíti ódýr mörk og einstaklingsmistök
Siggi Höskulds: Leikmenn Stjörnunnar vilja greinilega hafa Jökul í starfi
Halli: Þurfum að hugsa okkar gang
Gunnar Heiðar: Ég vissi ekki að við ætluðum allt í einu að setja inn gjafaleik FM
Jökull vísaði í leikplan Arsenal þegar hann hrósaði Þór
   mið 13. maí 2026 23:59
Sigurjón Árni Torfason
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Lárus Orri Sigurðsson er þjálfari ÍA.
Lárus Orri Sigurðsson er þjálfari ÍA.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Lárus Orri Ólafsson kom Grindavík yfir í framlengingunni.
Lárus Orri Ólafsson kom Grindavík yfir í framlengingunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA vann ótrúlegan sigur á Grindavík núna í kvöld á Akranesi.
Leikurinn fór 2-2 eftir framlengdan leik. En ÍA vann síðan eftir vítaspyrnukeppni 5-4.

Lestu um leikinn: ÍA 7 -  6 Grindavík

Lárusi Orra Sigurðssyni, þjálfara ÍA, var vægast sagt létt eftir leik.

„Úr því sem komið var, þá er manni létt að við skyldum hafa náð jafntefli í lokin. En ef maður stígur til baka og horfir á leikinn í heild sinni, þá er náttúrulega alveg með ólíkindum að þessi leikur hafi einhvern tímann farið í framlengingu. Við vorum miklu betri en þeir á öllum sviðum leiksins og vorum bara klaufar að vera ekki búnir að klára þennan leik hreinlega bara í fyrri hálfleik."

Lárus Orri Ólafsson leikmaður Grindavíkur nafni Lárusar Orra þjálfara ÍA skoraði 2-1 markið. Og stefndi allt í að hann hefði tryggt Grindavík sigur áður en Viktor Jónsson jafnaði metinn.

„Ég vissi það ekki einu sinni en gaman að sjá fleiri Lárusa Orra hérna."

ÍA voru með alla yfirburði í 90 mínútur og klaufalegt hjá ÍA að koma þessu í framlengingu.

„Ég veit ekki hvort ég myndi nota orðið klaufalegt. Við stjórnuðum bara leiknum og vorum þolinmóðir í sóknaruppbyggingunni, fengum mörg tækifæri og hérna vorum klaufar að setja ekki fleiri mörk. Ég held að það sem manni sýndist svona á leiknum að hefði komið annað markið. Strax í fyrri hálfleik þá hefði þessi leikur bara verið búinn. En þetta er svo stundum svona þegar maður nær ekki að klára leikinn, nær ekki að setja fleiri mörk þá er þér oft refsað fyrir það og okkur var heldur betur refsað í dag, ég held að það hafi verið skorað, þetta var bara flautumark þarna í lokin. En það sýnir karakterinn í liðinu að menn létu þetta ekki á sig fá, jafnvel þó að menn lentu undir í framlengingunni mjög ósanngjarnt þá héldu menn áfram og það sem skiptir máli núna er það að við erum komnir áfram með bikarinn, við erum reynslunni ríkari og nú bara áfram gakk."

Skagamenn hafa ekki byrjað þetta tímabil eins vel og þeir hefðu viljað. Og spurning hvað þeir taka úr þessum leik inn í deildina.

„Það er bara margt, við náttúrulega tökum þennan leik og greinum hann eins og alla aðra leiki og við komum okkur í mörg færi, við áttum margar góðar sóknir og við þurfum bara að vera grimmar inni í teignum og klára færin okkar og hérna, en það sem ég tek helst út úr þessum leik er náttúrulega bara karakterinn sem liðið sýnir. Þetta er þetta er erfitt, þetta er högg að fá þetta mark í lokin eftir að hafa verið svona miklu betri allan leikinn og ég tala nú ekki um að lenda undir svo í framlengingunni þannig að það er mikill karakter að koma til baka. Og við erum komnir áfram í bikarnum og nú er bara að recovera og gera sig klára fyrir ferð til Akureyrar um helgina."
Slapp
banner
banner